fjárlög 2023.
félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Mig langar að vekja sérstaklega máls á þeim skrefum sem við stígum með þessu fjárlagafrumvarpi fyrir velferðarkerfið og ekki síst hvað varðar málefni örorkuþega og fatlaðs fólks. Í fyrsta lagi er gerð tillaga um 430 millj. kr. í vinnumarkaðsaðgerðir til að styðja atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu. Í öðru lagi þá stígum við það mikilvæga skref að nær tvöfalda frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem ekki hefur verið hækkað síðan árið 2009. Þetta tekur í burtu hindranir fyrir fólk inn á vinnumarkað, dregur úr skerðingum og kallað hefur verið eftir þessu lengi. Við erum því á fullri ferð í endurskoðun örorkulífeyriskerfisins og tökum mikilvæg skref í þeirri vegferð. Í þriðja lagi langar mig að nefna að á milli umræðna erum við að hækka framlög til heilbrigðiskerfisins um 12 milljarða sem skiptir gríðarlegu máli og við munum fjármagna helmingi fleiri NPA-samninga á næsta ári en á þessu ári. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur mun áfram vinna ötullega að því að efla velferðarkerfið á Íslandi.