153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:50]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði í dag um mjög mikilvæg fjárlög og það gerist á degi þar sem við erum að sjá kjarasamninga á stórum hluta almenna markaðarins verða að veruleika. Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað, og óskað eftir að Alþingi taki til skoðunar, skipta þar miklu máli. Ég held að í heild sinni, með afgreiðslu þessara fjárlaga og þess sem er að gerast hjá aðilum vinnumarkaðarins, séu þetta mjög sterk skilaboð inn í nýtt ár, rétt fyrir jólin, um stöðugleika á vinnumarkaði sem og í hinu efnahagslega tilliti og möguleikum til að halda áfram.

Hér inni eru fjölmörg atriði sem horfa til betri vegar, styrkja velferðina í landinu, heilbrigðiskerfið, lögreglu, öryggiskerfi, Landhelgisgæslu og áframhaldandi breytingar á örorkukerfinu eins og hæstv. félagsmálaráðherra benti á. Allt til þess að við höldum áfram á þeirri braut sem við höfum verið á á síðustu árum. Þessi fjárlög styrkja það (Forseti hringir.) og ég vil þakka öllum sem að þeirri vinnu hafa komið.