153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:52]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Já, mér varð tíðrætt um blaðamannafundi hæstv. ríkisstjórnar í fyrri ræðu minni. Það var boðið upp á annan slíkan í dag þar sem þau tíðindi bárust að hæstv. ríkisstjórn hefur fallist á hluta kjarapakkans sem við í Samfylkingunni kynntum í síðustu viku. Má þar nefna hærri húsnæðisbætur til leigjenda, hærri vaxtabætur og hærri barnabætur til fjölskyldna. Við fögnum því auðvitað að hæstv. ríkisstjórn fallist á hluta kjarapakkans sem við og verkalýðshreyfingin, og fleiri í minni hlutanum, höfum talað fyrir að undanförnu. Það er auðvitað alveg ljóst að baráttan er að skila einhverjum árangri og það er fagnaðarefni. En ég vil líka vekja athygli á því að umræddar aðgerðir eru algjört lágmarksviðbragð við ástandi sem hæstv. ríkisstjórn hefur sjálf skapað. Vegna þessa þá drögum við til baka breytingartillögur okkar varðandi þessi þrjú umræddu mál og köllum þær aftur til 3. umr. þegar tillögur hæstv. ríkisstjórnar hafa litið dagsins ljós. Svo bíðum við bara eftir næsta blaðamannafundi fyrir samþykkt þessara fjárlaga.