153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:57]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fjárlaganefnd kærlega fyrir hennar vinnu og svo vil ég óska okkur öllum innilega til hamingju með það að við höfum náð kjarasamningum. Í dag er því hálfgerður fagnaðardagur og ég er mjög ánægð að sjá að verið sé að styðja betur við leigjendur og verið að hækka barnabætur. En jafnframt er verið að gera það sem mestu máli skiptir, það er verið að efla velferð í landinu ásamt því að ríkisfjármál eru ábyrg. Það vill þannig til að við sjáum fram á það að verið er að lækka ríkisskuldir. Við erum komin með ríkisskuldir í sirka 33% af vergri landsframleiðslu sem þykir eitt það besta í Evrópu. Að sama skapi erum við að lækka fjárlagahalla og einnig vil ég nefna að verðbólga mælist næstlægst af öllum ríkjum á EES-svæðinu. Það er bara talsvert afrek, vil ég segja, við þennan ágæta sal. En mestu máli skiptir: Fjárlaganefnd hefur staðið sig vel. Það er búið að ná kjarasamningum og við erum að efla velferð í landinu.