153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:58]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tel það fagnaðarefni að aðilar vinnumarkaðarins hafi náð saman í dag, það sýnir ákveðna framsýni. En um leið er það líka lýsandi hvernig ríkisstjórnin hefur lagt þetta fram, það þurfti aðila vinnumarkaðarins og líka tillögur og þrýsting frá stjórnarandstöðunni til þess að ríkisstjórnin sæi ljósið þegar kemur að barnafjölskyldum og þeim sem hafa það erfitt í samfélaginu. Þannig að við í Viðreisn munum draga tillögu okkar til baka til 3. umr.

Það er áhyggjuefni að heyra ráðherra í ríkisstjórn, þar á meðal hæstv. fjármálaráðherra, hafa litlar sem engar áhyggjur af skuldahalla ríkissjóðs. Það er verið að velta lífskjörunum, eða ábyrgðinni á skuldum ríkissjóðs, yfir á næstu og jafnvel þarnæstu ríkisstjórn. Hvað er verið að gera? Það er verið að taka lífskjörin að láni og að mínu mati þá er það ekki góð pólitík.