153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:04]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér koma hæstv. ráðherrar í röðum til að fagna þessu frumvarpi, fjárlagafrumvarpi ójafnaðar. Í þessu frumvarpi er ekki hreyft við ríkasta fólkinu í landinu sem hefur aukið fjármagnstekjur sínar umtalsvert á milli ára og borgar lægri skatta en við öll hin. Það er ekkert hreyft við ofsagróða fjármálafyrirtækjanna og það er ekkert hreyft við stórútgerð sem hagnast vel á stríðinu í Úkraínu vegna þess að fiskverð hefur hækkað í Evrópu. Fólkinu sem þarf að treysta á almannatryggingar er hins vegar haldið í fátæktargildru og heilbrigðiskerfið, sem sannarlega hefur sýnt veikleika sína, mun áfram glíma við mikla erfiðleika og ekki er tekið á mönnunarvandanum. Þeir fjármunir sem settir eru inn á milli umræðna eru bara til þess að koma í veg fyrir að það verði stórkostlegur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu.

Þetta fjárlagafrumvarp, forseti, er frumvarp ójafnaðar og það er það sem hæstv. ráðherrar koma í röðum til að fagna.