fjárlög 2023.
Forseti. Þetta fjárlagafrumvarp lýsir þeim efnahagsmistökum sem ríkisstjórnin hefur gert á undanförnum árum í húsnæðismálum mjög skýrum orðum og hvað þá þegar við sjáum tillögur sem koma hérna rétt fyrir atkvæðagreiðslu. Það virðist vera sem svo að stjórnin geti ekki komið með neinar tillögur í þessum málaflokki og einhvern veginn þurfa þær að koma utan frá í einhverjum kjaraviðræðum við einhverja aðra frekar en á pólitískum forsendum. Til hvers þurfum við þessa ráðherra ef þau geta ekki komið með tillögur til þess að laga vandann? Í alvörunni? Af hverju erum við með utanþingsstjórn hérna á Íslandi, án þess að vita það?