fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Hér er talað um ábyrg ríkisfjármál en hvergi í þeim breytingartillögum sem okkur birtast hér né í þeim sem eru boðaðar í 3. umr., sem verður þó sú síðasta í þessu frumvarpi hefði ég haldið, er talað um einhvers konar tekjubreytingar. Ég veit ekki hversu ábyrg ríkisfjármál það eru að koma með 12 milljarða breytingar og svo 5 milljarða breytingar og hvergi vilja hrófla við ósanngjarnri skattheimtu í landinu. Við í Samfylkingunni viljum hlífa almenningi við gjaldahækkunum, við viljum fara sértækar gjalda- eða skattainnheimtuleiðir. Hér erum við að greiða atkvæði um tillögu sem sækir allt að 4 milljarða kr. og snýr að því að koma í veg fyrir skattasniðgöngu, að fólk telji atvinnutekjur ranglega fram sem fjármagnstekjur í staðinn fyrir launatekjur. Þetta er leið sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur talað fyrir, Norðurlöndin hafa talað fyrir og við getum hæglega innheimt þarna nokkra milljarða króna sem falla á efstu prósentuna í landinu sem hefur svo sannarlega svigrúm.