153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Forseti. Eins og hv. þm. Kristrún Frostadóttir kom ágætlega inn á þá skýtur skökku við að ríkisstjórnin haldi því fram að hún sé einhvern veginn að auka jöfnuð í samfélaginu en það birtist hvergi. Það birtist ekki í því að breiðu bökin séu fundin til að leggja auknar byrðar á eins og t.d. efstu prósent tekjustigans, eins og t.d. fólk sem ratar ekki einu sinni í efstu prósentin vegna þess að það telur tekjurnar öðruvísi fram. Það ætti að vera svo sjálfsagt mál að samþykkja þessa tillögu vegna þess að hún snýst ekki um neitt annað en að við vinnum í átt að auknum jöfnuði í gegnum tekjukerfið, í gegnum skattkerfi hins opinbera. Það virðist ekki vera einhugur um það í salnum, því miður. Það mátti reyna í þetta skiptið, sjáum hvort það gengur næst.