153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:19]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Hvað er sanngjarnt? Hér erum við að greiða atkvæði um það að fá örlítið fleiri krónur í okkar sameiginlegu sjóði af auðlindinni okkar, sjávarauðlindinni, sem greiðir ekki einu sinni fyrir Hafrannsóknastofnun. Auðlindagjöldin til okkar geta ekki einu sinni greitt fyrir þá starfsemi sem nauðsynleg er í hafinu í kringum landið, því miður. Flokkur fólksins kemur með breytingartillögu þar sem við erum með jafnvel enn fleiri krónur. 533 milljarðar í hreinan hagnað sjávarútvegsfyrirtækjanna frá því árið 2009, á sama tíma greiddu þau 85,9 milljarða kr. í veiðigjöld. Vá, hvað það hefði nú verið gaman ef við hefðum bara fengið helminginn af þessum 533 milljörðum kr. og allir hefðu bara verið sáttir, er það ekki? Af hverju skyldum við ekki eiga kost á því að fá almennilega — a.m.k. eitthvað sanngjarnt verð þegar stórútgerðirnar eru með aðganginn að auðlindinni okkar? (Forseti hringir.) Ég segi já.