153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:22]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Nú stendur yfir umfangsmikil vinna á vegum míns ráðuneytis sem felur í sér heildarendurskoðun á umhverfi sjávarútvegs á Íslandi og m.a. er til skoðunar að fjalla um tækifæri í greininni, um umhverfis- og vistkerfissjónarmið, um samfélagsþætti og loks um aðgengi að auðlindinni. Í þessari vinnu eru veiðigjöld ekki undanskilin enda er þar á ferð grundvallarumræða um endurgjald fyrir aðgengi að auðlind sem er í eigu þjóðarinnar. Fyrstu tillagna er að vænta úr þessari vinnu frá starfshópum á næstu vikum og það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því og það er mikilvægt, virðulegur forseti, að undirbyggja slíkar tillögur vel.