153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:24]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Viðreisn styður ekki þessa útfærslu en er þó með sína eigin sem er raunar mjög í anda þess sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson tók hér fram áðan. Að mínu viti þurfa tillögur eins og þessar að vera útfærðar og raunhæfar og í anda þeirra laga sem þær spila inn í en andi þeirra laga — menn geta deilt um það hvort þau séu sanngjörn eða ekki — er að gjaldið sé afkomutengt og byggi á afkomu útgerðarinnar. Það er þó á þessari aðferð galli sem hv. þingmaður kom inn á og er tekið á í tillögu Viðreisnar, en þessa styð ég ekki.