fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Hér er gerð tillaga um að færa bankaskatt til fyrra horfs. Í dag er bankaskatturinn 0,145%. Hann var áður 0,376%. Þetta eru ekki háar prósentutölur. En ef við myndum færa hann í fyrra horf þá gerði það það að verkum að ríkissjóður fengi 9 milljörðum meira. Málið er að íslenskur bankamarkaður er raunverulega ekki samkeppnismarkaður. Þetta er sjálftaka á hagnaði eins og kom fram í fyrra. Þá jókst hagnaður bankanna um 50 milljarða og var á því ári um 82 milljarðar kr. Það er ekki samkeppni. Þess vegna á að færa bankaskattinn í fyrra horf. Rökin á þeim tíma, fyrir því að lækka bankaskattinn, voru þau að þetta væri vegna Covid. Núna er Covid búið og það á að færa hann aftur í fyrra horf. Svo einfalt er það. Við eigum að hætta að tala um bankamarkað sem einhvern samkeppnismarkað. Þetta er sjálftökumarkaður á hagnaði og ekkert annað.