fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. 533 milljarðar kr. í hreinan hagnað sjávarútvegsins frá því 2009. Nú er ríkisstjórnin í þessu fjárlagafrumvarpi að biðja um u.þ.b. 10 milljarða til að setja í eftirlit og rannsóknir með auðlindinni okkar. Hafrannsóknastofnun 4,3 milljarðar, Fiskistofa — það er verið að biðja um peninga vegna þess að auðlindagjaldið okkar stendur ekki einu sinni undir því að reka eftirlits- og rannsóknastofnanir sem snúa beint að sjávarauðlindinni. Þetta er galið, virðulegi forseti, þetta er algerlega galið og þetta er svívirðileg framkoma við okkur sem samfélag, að okkur sé sendur svoleiðis fingurinn að við fáum ekki einu sinni að innheimta af auðlindinni það sem kostar að reka umfangið í kringum hana. Þannig að þetta er ekkert annað en sanngjarnt og eðlilegt að við sækjum þessa 7 milljarða kr. í rauninni í stóra samhenginu miðað við hagnað, 14% er hrun krónunnar núna versus dollarar. Stórútgerðin er að hagnast og það er algerlega frábært. En við viljum fá að taka þátt í því. (Forseti hringir.) Ég segi já.