fjárlög 2023.
Herra forseti. Íslensk heimili greiða meiri hluta umhverfisskatta eða um 60% slíkrar skattheimtu hér á landi. 60% af umhverfissköttum lenda á heimilunum og það er með því hæsta sem gerist í viðmiðunarríkjum okkar. Hér er lagt til að stóriðjan leggi sitt af mörkum til ríkissjóðs, til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum enda kannski eðlilegt þegar hún stendur fyrir þriðjungi af losun Íslands. Einn þriðji af þeim koltvísýringi sem er dælt út í loftið á okkar ábyrgð er út um háfa stóriðjunnar. Er ekki eðlilegt að hún greiði fyrir það? Samhliða því að innleiða kolefnisgjald, eins og Viðreisn leggur hér svo ágætlega til, þarf að tryggja að það renni síðan í þágu aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Maður lifandi hvað væri hægt að gera mikið þá. Það væri hægt að margfalda þær aðgerðir sem er gripið til gegn loftslagsbreytingum (Forseti hringir.) frá því aðgerða- og stefnuleysi sem núverandi ríkisstjórn virðist vera sátt við.