fjárlög 2023.
Forseti. Eins og fram hefur komið skilar útgerðin á Íslandi methagnaði. Það er auðvitað mikið ánægjuefni. Veiðigjöldunum er ætlað að tryggja eigendum auðlindarinnar, þ.e. þjóðinni, sanngjarnan skerf í þeirri velgengni. Núgildandi lög um veiðigjöld eru því miður alvarlega gölluð. Í stað þess að miða tekjur af útgerð við eiginlegt verð fisks er miðað við reiknaðar tekjur samkvæmt opinberu fiskverði sem er í raun afleiðing kjarasamninga sjómanna og útgerða fremur en að vera eiginlegt verð. Til er verð sem hægt er að miða við, verð á fiskmörkuðum. Eðlilegra væri að miða við það eins og gert er annars staðar þar sem sambærileg gjaldtaka fer fram, t.d. þegar Norðmenn meta gjaldið eða reikna gjald af olíuauðlindum sínum miða þeir við heimsmarkaðsverð á olíu, ekki það verð sem fyrirtækjum dettur í hug að gefa upp. Verðmæti á að mæla og leyfa þeim að njóta þeirra sem þau skapa.