fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þarf að koma hérna upp bara til að gera athugasemd við það að ágætisbreytingartillaga Samfylkingarinnar um hækkun á fjármagnstekjuskatti, þ.e. að tekjur af fjármagnstekjuskatti aukist, hafi verið felld og ekki sé gert ráð fyrir því að hækka fjármagnstekjuskatt. Við vitum að það hefur verið methagnaður hjá þeim sem hafa fjármagnstekjur að aðaltekjum og almennt þeim sem fá miklar fjármagnstekjur, sérstaklega þegar kemur að hlutabréfaveltu. Þetta hafa verið tugir milljarða sem hafa verið að falla í skaut fjármagnseigenda að mestu leyti til. Hér er ákveðið vannýtt tækifæri, virðulegi forseti, til að skattleggja þá sem mest hafa grætt á þeim efnahagsþrengingum sem við höfum verið að ganga í gegnum og það er miður og ég kom upp til þess að lýsa því yfir, virðulegi forseti.