fjárlög 2023.
Forseti. Hér greiðum við atkvæði um erfðafjárskatt en ég vil gera þá athugasemd að erfðafjárskattur er notaður dálítið til að færa auð á milli kynslóða og hefur verið gert dálítið að undanförnu, fyrirframgreiddur arfur o.s.frv., sem er eitthvað sem við ættum að íhuga betur hvernig við ætlum að glíma við. Það er mjög eðlilegt að það sé eðlileg tilfærsla á arfi á milli kynslóða en ekki að eitthvað sem fer að nálgast auðæfi heils þorps í árstekjum fari á milli einstaklinga. Það er ekki eitthvað sem við eigum að geta miðað við. Það þýðir einfaldlega að við höfum gert einhver mistök í hagstjórnarkerfinu okkar þegar auður getur safnast í svo miklu magni upp hjá einstaklingum. Það er mjög einfalt. Þannig að hérna ættum við að staldra aðeins við og skoða hvernig við getum gert þetta á betri hátt.