fjárlög 2023.
Forseti. Kolefnisgjald er samkvæmt þessum lið 7,6 milljarðar kr. Það gjald leggst umfram allt á eldsneyti eins og bensín og sú gjaldtaka þjónar ágætum inngangi í að búa til efnahagslega hvata fyrir fólk að færa sig yfir í grænni orkugjafa. En taktu eftir, forseti, að þessi gjaldtaka leggst umfram allt á fólk, einstaklinga, heimili. Hér fyrr í atkvæðagreiðslunni var felld tillaga um að leggja sambærilegt gjald á stóriðjuna sem mengar langtum meira. Það gjald átti að vera 13,5 milljarðar, tvöfalt það sem hér er verið að leggja á heimilin í landinu. Það er greinilega ekki sama hvar sanngjörnu umskiptin eru sótt. Ríkisstjórnin vill alla vega ekki sækja fé í vasa stóriðjunnar, það eru heimilin sem skulu greiða kolefnisgjald frekar.