fjárlög 2023.
Forseti. Betur má ef duga skal og styð ég þessa tillögu með heilum hug. Tæknin fer hraðar heldur en fjárlög, mikið, mikið hraðar og nú erum við að glíma við málefni eins og t.d. Lensa og Dall-E og fleiri slík verkefni þar sem spurningin um höfundarétt er t.d. á mjög miklu reiki. Þær eiga líka við í máltækninni þar sem er verið að þjálfa tauganet til að skrifa texta. Það er ekkert svo langt þangað til að við munum sjá bók sem er skrifuð af tölvu, handrit að kvikmynd og jafnvel bara kvikmynd í fullri lengd og við þurfum að vera hraðari í rauninni í verkum, bæði hvað þennan málaflokk varðar og tæknina sem við þurfum að eiga hérna á íslensku til að fylgja með.