153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:56]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða 4 milljarða kr. aukafjárveitingu fyrir endurgreiðslukerfi til kvikmyndagerðar á Íslandi. Það hefur einmitt skort í fjárlögum síðustu ára að þessi endurgreiðslukerfi, bæði þetta og það sem við fjöllum um næst, séu raunverulega sett upp í raunupphæðir í stað þess að vera nær og vera síðan lagfærðar í fjáraukalögum. En ég tel það mjög mikilvægt verkefni að fá hingað kvikmyndagerð og halda áfram öflugri kvikmyndagerð hér á landi og styð því þetta verkefni heils hugar.