153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:03]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tel ástæðu til að vekja athygli á þeim miklu fjármunum sem við erum hér að setja í löggæsluna, bæði til ríkislögreglustjóra og til almennrar löggæslu, til rannsókna á efnahagsbrotum, til rannsókna á kynferðisbrotum o.s.frv. þannig að það er verið að styrkja við lögregluna. Við erum að draga úr aðhaldi gagnvart lögreglunni og við hvetjum ríkisstjórnina til að huga að því þegar kemur að fjármálaáætlun, að huga að þessum aðhaldskröfum sem lögreglan hefur fengið á sig. Við teljum ástæðu til að úr þeim verði dregið því að þeirra starf í löggæslunni og lögreglunni allri saman og í dómskerfinu hefur verið með þeim hætti að við teljum a.m.k. að það sé þörf á því að fjármunirnir og aðhaldið verði ekki með þeim hætti sem lagt var af stað með hér. Þannig að, virðulegi forseti, þetta fer í rauninni á allan geirann. Þetta fer líka á fangelsismálin og þetta fer í gegnum allt kerfið, sem skiptir miklu máli.