153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Forseti. Ég ætla að játa það á mig að ég á stundum erfitt með að lesa út úr þessum breytingartillögum en mér reiknast til að hér séum við m.a. að leggja til aukið fjármagn til ríkislögreglustjóra til að taka við öryggisgæslu hér innan þings. Þá þykir mér rétt að upplýsa það að sem fulltrúi Pírata í forsætisnefnd lagðist ég gegn þeirri beiðni um aukna fjármuni, ekki vegna þess að ég hafi endilega forsendur til að rengja mat embættisins á öryggisþörf æðstu stjórnar landsins heldur vegna þess að það er algjörlega óútfært hvernig þetta muni breyta eðli, ásýnd og aðkomu almennings að þessum húsakynnum okkar eða nokkuð annað. Mér finnst óþægilegt að rétta óútfylltan tékka til lögreglunnar og beini því til þeirra sem taka nú til við að semja við lögregluna um hvernig eigi að útfæra þetta, að gæta þess að við búum ekki til eitthvert búr utan um þetta þing sem á að vera eins opið og við mögulega getum.