153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:06]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að hér getum við fagnað þeim viðbótum sem koma til löggæslu og öryggis í landinu. Það hefur undanfarin ár verið bætt jafnt og þétt í lögregluna en með miklum undirbúningi og auknum áskorunum er stigið enn stærra skref núna, sem var orðið tímabært. Ég tek undir með hv. formanni fjárlaganefndar um að það þarf að huga að því við fjármálaáætlun að almanna- og réttaröryggisliðurinn sæti ekki aðhaldskröfum þar sem launahlutfallið er mjög hátt í þessu. Ég sagði áðan að við hefðum verið að bæta við jafnt og þétt í löggæsluna undanfarin ár og þau verkefni sem hafa verið fjármögnuð, eins og aukinn málshraði í rannsóknum kynferðisbrota, eru nú þegar farin að sýna árangur og ég veit að þeir fjármunir sem við erum að veita núna munu skila miklum árangri hvað varðar öryggi þjóðarinnar.