fjárlög 2023.
Forseti. Nýlega fengum við skrifleg svör frá hæstv. dómsmálaráðherra um biðlista í fangelsum landsins, tölur sem gáfu til kynna mjög alvarlegan og mikinn vanda. Ég hefði viljað sjá það gerast í vinnu meiri hlutans núna að löggæslan í heild sinni, lögreglan, ákæruvaldið, dómstólar og fangelsi, fengi sömu meðferð og heilbrigðiskerfið, yrði undanskilin hagræðingarkröfu í ljósi þess ástands sem þar ríkir. Þó að ég fagni því fjármagni sem hér er að renna inn held ég að góður bragur hefði verið á því að fara með þeim hætti inn í þennan málaflokk í ljósi ástandsins sem þar er.