153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Dómsmálaráðuneytið og Fangelsismálastofnun komu til fjárlaganefndar og lýstu ákveðnu hættuástandi, neyðarástandi í fangelsunum. Til að viðhalda því neyðarástandi, en þurfa ekki að skera niður, þyrfti 250 milljónir á næsta ári. Þessar 250 milljónir eru ekki til eflingar, eins og ég skildi það á fundinum, heldur til að viðhalda sama hættuástandi og neyðarástandi og áður. Vissulega er fjármagn annars staðar sem ætti kannski að létta á fangelsunum á einhvern hátt, vonandi. Þetta er ekki það sem ég hafði vonast eftir en ég styð að sjálfsögðu þetta að lágmarki.