153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér eru greidd atkvæði um sóknargjöld og hækkun sóknargjalda frá því sem lagt var af stað með í frumvarpi sem hér var lagt fram. Ég vil minna þingheim á að árið 2008 var farið í mjög sársaukafullar aðhaldsaðgerðir á mörgum sviðum í heilbrigðiskerfinu og í samgöngukerfinu okkar og þá stóð ekki á þjóðkirkjunni að leggja sitt af mörkum. Gerð var mikil og rík aðhaldskrafa á kirkjuna sem hefur ekki verið leiðrétt síðan. Það hefur verið stöðug krafa til aðhalds þar allar götur síðan. Kirkjan er velferðarkerfi, sérstaklega landsbyggðarinnar. Þetta er sá staður sem hýsir margvíslegt félagsstarf, menningarlíf, tónlistarlíf okkar og mig langar sömuleiðis að minna þingheim á að hér á Íslandi eru ríflega 200 friðaðar kirkjur þar sem er aukin krafa á sóknir um að viðhalda þeim með ákveðnum hætti og það vantar sárlega fé til þess.