fjárlög 2023.
Herra forseti. Ég geri hér grein fyrir atkvæði mínu, sem er nei. Annars vegar get ég gert athugasemdir við það að ríkið sé á annað borð að innheimta félagsgjöld fyrir trúfélög. Ég hvet fólk til þess að spyrja sig í því samhengi hvaða kröfur ríkið geri til trúfélaga sem það er að innheimta félagsgjöld fyrir. Með vísan í rökin sem komu fram hér áðan, hjá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þá langar mig að spyrja hvort ekki væri nær, ef þessi félög eru að sinna mikilvægri þjónustu sem ríkið á réttilega að sjá um, og hvort ekki væri eðlilegra að gerðir yrðu þjónustusamningar við þessi félög þar sem gerðar yrðu ákveðnar tilteknar kröfur til rekstrarins. Þá þykja mér rökin fyrir hækkuninni sem við erum að samþykkja hér ekki ná nokkurri átt, ekki standast neina skoðun. Ég segi nei.