fjárlög 2023.
Forseti. Þetta er að verða ein jólalegasta hefðin á þessum sex árum sem ég hef setið á þingi. Fjármálaráðherra kemur til okkar og leggur til að lækka sóknargjöld. Þar skorar hann prik í kladdann sem alveg svakalega ráðdeildarsamur fjármálaráðherra. En svo skorar þingfólk prik í kladdann hjá sóknarnefndum út um allt land með því að hækka og ekki bara þannig að það lækkar ekki heldur bara hækkar nettó frá því sem hafði verið árið áður. Það er samt dálítið skrýtið hvað það er auðvelt að ná þessum peningum út úr þingi sem á ekkert alltaf auðvelt með að láta fé af hendi rakna. Hér er sagt að kirkjan sinni velferðarþjónustu um allt land, það eru fleiri sem gera það, sálfræðingar t.d. Við þurftum að berjast fyrir 150 milljónum til að niðurgreiða sálfræðikostnað hér fyrir ári. Hér fær kirkjan og önnur trú- og lífsskoðunarfélög 383 milljónir, bara sisvona; ofan á einhverja milljarða sem við erum að innheimta í þessi félagsgjöld fyrir félögin. Þjónustusamningur er eitt, annað er bara að leyfa félögunum (Forseti hringir.) að innheimta sín eigin félagsgjöld og ríkið stendur síðan straum af velferðarþjónustu á faglegum forsendum.