153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er breytingartillaga sem felur í sér aukið fjármagn til eftirlits með netöryggi en þeir sem hafa litið á drög að nýrri þjóðaröryggisstefnu sjá að þar er mikil áhersla lögð á að bæta möguleika okkar á að bregðast við netárásum og ýmsum netglæpum. Frá því að við gerðum breytingar á fjarskiptalögum í vor hefur hins vegar vantað aukið fjármagn til þeirra stofnana sem eiga að vera með þetta eftirlit. Því leggjum við til aukið fjármagn til þess og teljum að sennilega mætti það vera mun meira ef við ætlum að standast þær árásir sem önnur lönd eru að lenda í akkúrat núna.