fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Já, ríkisstjórnin er með metnaðarfull markmið þegar kemur að orkuskiptum. Í stjórnarsáttmálanum segir m.a., með leyfi forseta:
,,Lögð verður áhersla á markvissar og metnaðarfullar aðgerðir til að draga úr losun vegna landnotkunar og hraða orkuskiptum á öllum sviðum.“ Af fjárframlögum til umhverfis-, orku- og loftslagsmála er ekki að sjá að það sé raunin, því miður. Málið er, virðulegi forseti, að við höfum raunverulegan möguleika á að vera fremst í heiminum á þessu sviði jafnvel þó að það ætti nú ekki alltaf að vera æðsta markmið en við höfum alla burði til þess. En til þess þarf ríkisstjórnin rífa sig í gang og hrinda alvöruaðgerðum af stað.