fjárlög 2023.
Forseti. Hér er hún komin, breytingartillagan sem ég hvatti þingmenn áðan til að samþykkja en virðist ekki alveg hafa náð til þeirra, þannig að ég ætla bara að ítreka hvað þetta snýst um. Formaður loftslagssjóðs kallar eftir gjörðum en ekki orðum. Sjóðurinn er glæpsamlega vanfjármagnaður með 100 milljónir á ári í fjárlögum. Hér er lagt til að veita þá upphæð til sjóðsins sem jafngildir tekjum íslenska ríkisins af ETS-kerfinu, viðskiptakerfi með uppboð loftslagsheimilda. Með þessu væri stóriðjan um gjörvalla Evrópu að greiða fyrir græna nýsköpun á Íslandi, að greiða fyrir lausnir á vandanum sem hún veldur. Þetta er í anda grænu umskiptanna sem ríkisstjórnin þykist tala fyrir. Þetta er í anda markmiða laga um loftslagsmál sem ríkisstjórnin þykist starfa eftir. En virkar þetta? Mér finnst eins og enginn heyri í mér. Stjórnarliðar eru enn í alvöru að fara að fella þessa tillögu um að gera loftslagssjóð að alvörusjóði. Talaði ég ekki nógu hátt?