153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:50]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er verið að gera það að tillögu að framlög til Kvikmyndasjóðs hækki um 290 milljónir, þetta fé verði tekið frá Ríkisútvarpinu sem fær sjálfkrafa hækkanir vegna verðbólgu og fólksfjölda í landinu. Í fjárlagafrumvarpinu var upphaflega gert ráð fyrir lækkun upp á rúmlega 400 millj. kr. til Kvikmyndasjóðs, innlendrar kvikmyndagerðar. En ég get ekki annað en vakið athygli á fréttatilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu, þar sem kemur fram að við 2. umr. fjárlagafrumvarpsins megi vænta þess að lagt verði til að 100 millj. kr. verði lagðar í Kvikmyndasjóð auk þess sem ráðuneytið muni leggja fram 150 millj. kr. viðbótarframlag. Ég hef ekki enn séð þessa tillögu um 100 millj. kr., svo að það komi fram, en vek athygli á því að þetta kom daginn fyrir uppskeruhátíð evrópskra kvikmyndagerðarmanna í Hörpu og þetta er sennilega einn dýrasti miði í Hörpu sem hér hefur sést. En ég fagna þessu framlagi og óska eftir því og tel mikilvægt að þingheimur samþykki þessa tillögu um aukna kvikmyndagerð þar sem þetta framlag margfaldast í styrkjum úti í Evrópu.