fjárlög 2023.
Forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um styrki til einkarekinna fjölmiðla en vandinn er að í áliti meiri hlutans eru tvær skýringar á þessum fjármunum. Annars vegar er sagt að gerð sé tillaga um 100 millj. kr. tímabundið framlag til stuðnings við einkarekna fjölmiðla sem maður hefði haldið að væri sama fyrirkomulag og hefur verið undanfarin misseri. Hins vegar er líka sagt að framlagið sé vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð. Þá erum við nokkurn veginn komin í 100 millj. kr. styrk fyrir einn fjölmiðil með þessari tillögu. Ég veit ekki hvort atriðið er verið að greiða atkvæði um hérna þannig að ég sit hjá.