fjárlög 2023.
Frú forseti. Hér greiðum við atkvæði um viðbótarframlag til heilbrigðismála, 12,2 milljarða kr. í heildina, sem undirstrikar áherslur stjórnvalda á að standa vörð um heilbrigðiskerfið. Þar má nefna styrkingu á rekstrargrunni Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri til að gera þeim betur kleift að sinna ýmsum verkefnum. Það eru framlög til styrkingar heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar innan heilbrigðiskerfisins, framlög til endurhæfingar á Grensásdeild, framlög til nýrra hjúkrunarrýma, til Sjúkratrygginga, aukin áhersla á geðheilbrigðisþjónustu og lægri greiðsluþátttöku sjúklinga, auk sérstaks framlags til styttingar biðlista eftir ýmsum aðgerðum, svo sem liðskiptaaðgerðum.