fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég hef setið hjá í flestum tillögum meiri hlutans einfaldlega vegna þess að ég er ekki sátt við heildarniðurstöðu skjalsins og frumvarpsins, en ég styð þennan þátt málsins. Hér er um mikilvæga viðbót að ræða. Ég verð þó að segja, og það hefur komið fram í þessari umræðu í dag, að fjárlagafrumvarpið eins og það birtist okkur lá einfaldlega þannig fyrir að það var alltaf ljóst að hér þyrfti að bæta í og gera betur. Það sama má auðvitað segja um fjármögnun löggæslunnar. Það var alltaf ljóst miðað við hver framsetningin var, eftir að við heyrðum neyðaróp frá fangelsum landsins, að þar þyrfti að gera betur. Þrátt fyrir að hér sé um viðbótarframlag að ræða þá erum við í pólitík plástranna. Það er verið að plástra og plástra en það skortir framtíðarsýn og það birtist í því að ríkisstjórnin nær ekki samningum við sérfræðilækna, við sérgreinalækna, við sjúkraþjálfara. (Forseti hringir.) Ég vil minna á að enn og aftur er það að gerast að ríkisstjórnin neitar að líta til lagasetningar Alþingis um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.