153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:03]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er lögð til 300 millj. kr. hækkun á framlögum til SÁÁ. Samtökin veita fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu en ríkið hefur ekki tryggt þeim viðhlítandi fjármagn. Þar vantar 450 millj. kr. á ári. SÁÁ hefur í mörg ár kallað eftir auknum framlögum til að samtökin geti veitt þjónustu sem sannarlega er þörf á í baráttunni gegn fíknisjúkdómum. Hver einasti Íslendingur þekkir fjölmörg dæmi þess hve skaðleg fíknin er og hve mikilvægt er fyrir fíkla að geta leitað sér aðstoðar þegar þörfin er mest. Það er smánarblettur á íslensku samfélagi að starfsemi SÁÁ sé undirfjármögnuð um hundruð milljóna króna og í ár er undirfjármögnun upp á 450 millj. kr. Þess vegna leggjum við til að fjárveiting verði aukin um 300 millj. kr.