153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:04]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. SÁÁ sendi okkur erindi inn í fjárlaganefnd þar sem þau voru þakklát fyrir þá fjárveitingu sem á að veita, þessar 120 milljónir til að hækka framlögin, sem er vel. En það breytir ekki þeirri staðreynd, því sem er svo dapurt, eins og kemur fram í erindi þeirra, að það er því miður ekki hægt að halda úti viðunandi heilbrigðisþjónustu hjá SÁÁ. Það mun hafa áhrif á marga veika einstaklinga sem þurfa sárlega á henni að halda. Við vitum öll sem hér erum inni að tugir einstaklinga deyja á biðlista á hverju einasta ári og SÁÁ þarf samkvæmt þessu að skera niður um 200 millj. kr. á árinu 2023 og það verður sumarlokun á Vík og sumarlokun á sjúkrahúsinu Vogi og a.m.k. 160 sjúklingar verða af meðferð gegn ópíóíðafíkn. Það verða sem sagt lokanir á Vík, Vogi og dagdeildum og ég segi bara: Við getum ekki verið þekkt fyrir að fjármagna ekki að fullu heilbrigðisþjónustuna okkar.