fjárlög 2023.
Forseti. Í þessari atkvæðagreiðslu er einnig verið að greiða atkvæði um lyf en hér kemur fram mjög greinilega það vanmat sem var í fjárlagafrumvarpinu þegar það kom fram í haust, þrátt fyrir að vitað væri að það væri vanmat. Þetta er dæmi um þann blekkingarleik sem var hér í haust með vanfjármögnuðu fjárlagafrumvarpi. Nú er komið með breytingartillögur upp á 12,2 milljarða í heilbrigðiskerfið og sagt að það sé aukning. Nei. Það er út af vanmati á fjölmörgum liðum innan heilbrigðiskerfisins. Það er ekki hægt að monta sig af því að verið sé að koma með 12,2 milljarða kr. aukningu þegar verið er að stoppa í göt.