153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er lagt til að fjárhæðir almannatrygginga hækki um 10% milli ára til að tryggja að kjör öryrkja og eldri borgara haldi í við launaþróun og verðlag. Kjaragliðnun almannatrygginga mælist í tugum prósenta. Nú er kominn tími til að stíga skref í rétta átt. Einnig er lagt til framlag upp á 1 milljarð kr. til að draga úr skerðingum almannatrygginga frá fyrstu krónu. Hugsið ykkur, þeir öryrkjar sem hafa framfærsluuppbót og reyna fyrir sér á vinnumarkaði verða áfram fyrir skerðingu sem nemur 65% af atvinnutekjum þeirra af því að framfærsluuppbótin er skert að fullu. Öryrkjabandalagið hefur kallað eftir því að komið verði í veg fyrir þessar skerðingar frá fyrstu krónu. Við í Flokki fólksins teljum þetta mjög mikilvæga tillögu og það er algjörlega ólíðandi að verið sé að skerða framfærsluuppbót um 65% reyni öryrki fyrir sér á vinnumarkaði. Við skulum aðeins hugsa það nánar. Það er skerðing á atvinnufrelsi og brot á 76. gr. stjórnarskrárinnar sem tryggir rétt til aðstoðar fyrir öryrkja.