fjárlög 2023.
Hæstv. forseti. Endurskoðun örorkulífeyriskerfisins er komin á fullt skrið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og hér er um eitt skref í þeirri vinnu að ræða, 1 milljarðs kr. aukningu útgjalda sem fer í að hækka frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Þetta er mikilvægt skref. Það mun auka hvata fólks með mismikla starfsgetu til að fara út á vinnumarkað. Fólk mun halda eftir meiru af atvinnutekjum sínum en áður með þessari mikilvægu breytingu. Frumvarpið er því liður í því að auka lífsgæði og bæta kjör örorkulífeyrisþega og ég hlakka til að koma með fleiri umbótamál á næstu mánuðum inn í þingið er varða umbyltingu á þessu löngu staðnaða kerfi. Ég vil þakka hv. fjárlaganefnd fyrir afgreiðsluna á þessu máli.