fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Þetta er ánægjulegt mál að því leyti að þetta er skref í rétta átt. Ég vonast til þess að áður en við gerum það að lögum verði búið að girða fyrir það að fólk geti raunverulega tapað á því að fara inn í kerfið eins og flokksbróðir minn, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, benti á hér áðan. En að tala um að þetta sé kostnaður fyrir ríkissjóð er alrangt. Hins vegar sýnir þetta glögglega hvað einstaklingar hafa verið skertir, hvað ríkissjóður hefur verið að fá af fátækasta fólkinu sem var að vinna fyrir þessum launum, frá 109.000 kr. upp í þetta 200.000 kr. frítekjumark, sem hér er undir. Það var rúmur milljarður, hvorki meira né minna. Einhverjir munu virkilega hafa hagnað af þessu en að ríkissjóður tapi, ég tek ekki undir það að hann sé að skerðast að einu eða neinu leyti.