153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:15]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég styð þessa grein. Og jú, það væri gott ef þeir myndu nú einu sinni setja rétt inn í kerfið. En þetta er eins með allt, ef þeir setja eitthvað rétt inn í kerfið þá vita þeir nákvæmlega hvað rennur í gegnum kerfið og rennur aftur í ríkissjóð. Það er vegna skerðinga og við erum með skerðingarkerfi sem er svo flókið að það er ekki bara að skerða innan almannatryggingakerfisins heldur er það keðjuverkandi út fyrir kerfið. Og þegar við erum að hæla okkur af hækkun húsaleigubóta eða hækkun sérstakra húsaleigubóta í félagskerfinu þá er það ekki að skila sér til þeirra sem þurfa á því að halda vegna þess að það er búið að búa til skerðingar um allt kerfið til að sjá til þess að ná peningum af fólkinu þannig að það viti ekki hvað það er að fá. Og síðan kemur skerðingardagurinn mikli, skelfingardagurinn, sem enginn hefur lifað hér inni nema hafa verið í þessu kerfi, 1. júlí, þegar allt er tekið til baka af fólkinu, allt það sem það hafði áður fengið. Það er illa gert.