153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég var á velferðarnefndarfundi þegar þetta mál var tekið út úr nefndinni og spurði ítrekað hvort skilningurinn þar á bak við væri sá að það væri fjöldinn í lögunum sem réði eða fjárheimildir. Í velflestum öðrum tilfellum er það fjöldinn sem ræður. Það er fólkið sem á réttinn til að sækja þjónustuna samkvæmt lögum sem ræður. Ef það koma 100 manns á bráðamóttökuna þá er tekið á móti þeim, það er ekki sagt: Nei, fyrirgefið, fjárheimildin er búin. En í tilfelli NPA er sagt: Nei, fyrirgefið, við kláruðum alla fjárheimildina. Þið hin í biðröðinni verðið að bíða þar til síðar. Þetta gengur ekki upp að mínu mati. Það er verið að skilgreina samkvæmt lögunum fjölda samninga. Það er verið að troða inn núna „allt að“ inn í textann til að komast fram hjá þessu, en mér finnst það frekar lélegt. Það þýðir að þegar það koma kjarasamningar og þess háttar og það hækkar þá gætum við verið í þeirri stöðu að samningum fækki, (Forseti hringir.) það þurfi að taka einhvern í burtu af því að heildarsumman nær ekki lengur yfir þann fjölda samninga sem eru í gangi.