153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:21]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Það var gríðarlega mikilvæg breyting sem var gerð árið 2018 með lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar eða NPA og þetta er í rauninni eina raunverulega nýjungin á undanförnum árum þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk. Í fjárlagafrumvarpinu núna er gert ráð fyrir því að um helmingi fleiri samningar verði gerðir á næsta ári heldur en á þessu ári. Ég sé að því fagna hv. þingmenn allir hér í dag, enda er taflan alveg græn. Auðvitað miðar það við kostnað síðustu ára, þessi fjölgun, því eitthvert viðmið verðum við að sjálfsögðu að hafa. En mér finnst það afbökun á umræðunni að segja að hér sé um kvótasetningu mannréttinda að ræða og ég vil benda á að flest ef ekki öll sem fá NPA-samninga njóta annarrar þjónustu í dag og hér er verið að auka þjónustuna. Aðalatriðið er að hér er um jákvætt framfaraskref að ræða í réttindabaráttu fatlaðs fólks og ég segi já.