fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Tillaga þessi er hluti af tillögu Flokks fólksins þar sem lögð er til hækkun fjárhæða almannatrygginga um 10% milli ára til að tryggja að kjör öryrkja og eldri borgara haldi í við launaþróun og verðlag. Þetta á að vera tryggt í 69. gr. laga um almannatryggingar. Við höfum ekki farið eftir þessari grein undanfarin ár og jafnvel lengur en það, undanfarna áratugi. Rétturinn til aðstoðar vegna örorku og elli og sjúkleika og örbirgðar er tryggður í 76. gr. stjórnarskrárinnar. Við höfum ekki verið að tryggja þennan rétt nægjanlega. Við höfum sett lög um að við ætlum að tryggja þetta með 69. gr. almannatryggingalaga en það höfum við ekki gert. Á sama tíma erum við að fara eftir lögum um stofnun úti í bæ sem er í samkeppni við önnur fyrirtæki í landinu í fjölmiðlun og þar er gengið eftir því að tryggja rétt þessarar stofnunar samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið en við gerum það ekki þegar kemur að 69. gr. laga um almannatryggingar. (Forseti hringir.) Það er umhugsunarefni og það er varið í stjórnarskránni.