153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er lagt til 80 millj. kr. framlag til Sjónstöðvarinnar, þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, svo fjármagna megi að fullu innflutning og þjálfun leiðsöguhunda og koma í veg fyrir að kostnaður falli á notendur vegna ferða ásamt leiðsöguhundi til og frá landi. Auk þess mun fjármagnið nýtast til að greiða fyrir nýja tegund hjálpartækja, svokallaðra stækkunartækja, sem munu gagnast a.m.k. 150 einstaklingum. Ég segi já.