153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:31]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég held að við munum öll sem vorum hér á þingi síðasta vetur eftir þeirri ánægjulegu afgreiðslu að samþykkja hjálpartæki sem felst í því að blindir og mjög sjónskertir einstaklingar geti fengið leiðsöguhund. Það var alger bylting. Svo bætist við þessi nýi stækkunarbúnaður sem t.d. hefði gert mér persónulega og prívat kost á því að sjá einhvern tíma staf á töfluna í skólanum sem ég sá aldrei alla mína skólagöngu. Það eru líka vel á annað hundrað einstaklingar sem gætu nýtt sér það. Við skulum líka átta okkur á því að það eru yfir 100 börn sem eru að koma erlendis frá sem hafa ekki einu sinni túlkaþjónustu. Þetta eru í rauninni örfáar krónur sem við erum að biðja um, í fyrsta lagi til þess að geta fylgt eftir þeirri löggjöf sem við samþykktum hér fyrir tveimur árum síðan, og það væri bragur á því, virðulegi forseti, að við tækjum utan um þennan hóp sem þarf svo sannarlega á okkur að halda. Ég segi já.