fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Þetta á að vera sjálfsagt mál. Við eigum ekki einu sinni að þurfa að biðja um þessa peninga. Við erum við að tala um fólk sem á þennan rétt að geta fengið hund til aðstoðar eða þau tól og tæki sem þarf til að hjálpa því við lestur og dagleg störf. Það er gjörsamlega óskiljanlegt að við skulum þurfa að vera að biðja um aukafjárveitingu. Þetta ætti að vera svo sjálfsagt. Þetta eru ekki svo miklir peningar en þetta er ofboðslega mikilvægt fyrir þennan hóp. Ég held að enginn geri sér grein fyrir því fyrr en hann er í þeirri aðstöðu að þurfa á þessu að halda. Þá er ég alveg með á hreinu að allir hérna inni, ef þeir þyrftu á þessu að halda, myndu berjast fyrir því að fá það.