153. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[19:35]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér er lagt til að styrkja góðgerðarfélög sem annast matarúthlutanir um 150 millj. kr. Á hverju einasta ári berast fregnir af fólki sem bíður í röðum eftir mat. Nú er staðan orðin sú að samtökin eiga ekki nóg fyrir alla sem þurfa á hjálp að halda. Ef við ætlum að teljast til siðmenntaðra þjóða hljótum við að geta styrkt þessa starfsemi svo enginn þurfi að líða hungur á Íslandi. Það er með ólíkindum að við sem æðsta stofnun samfélagsins í þingræðisríkinu Íslandi fáum ekki meiri hluta fyrir tillögu sem þessari, að við styðjum ekki góðgerðarsamtök sem annast matargjafir um 150 millj. kr. Þetta eru algerir smápeningar í samhengi fjárlaga. Ég segi já.